Wednesday, January 30, 2008
Japönskunámskeið
Já við skulum ekkert vera að fara nánar út í það.
Annars er maður bara að læra og vinna nema í dag og á morgun þá er frí í vinnunni og svo löng vinnuhelgi framundan pffffff. Verð þreytt bara við að skrifa um það.
Svo var erfiður vinnudagur í gær, byrjaði vel en svolítið mikið að gera, en um tvö leitið komu 8 stykki gelgjur hlæjandi og skríkjandi og settust við borðin fyrir framan afgreiðsluna hjá okkur, og þarna sátu þær í næstum tvo og hálfan tíma, sem þýddi eitt stykki vondur höfuðverkur.
Svo loksins þegar höfuðverkurin fór lagði bíll frá flugbjörgunarsveitinni fyrir utan hjá okkur og það voru blikkljós á allan tíma (svonaljós eins og á gröfum) og þá kom höfuðverkurinn aftur á harðarspretti. Ég var mjög glöð að losna fyrr úr vinnunni:/
Þannig er nú það kv. Carrot
P.s. ég og Erla sitjum og hörfum á Opruh á stöð 2 og það er verið að tala um Secret bókina og myndina...úffff.
Sunday, January 27, 2008
Ehhhhhhhhhhh
Hvað er að frétta hmmmm?
Ég er í fríi, jey, á laugardaginn fór ég á Japanska hátíð í háskólanum með Bjössa, Erlu, Sól, Þórgunni og Önnu geðveikt fjör, ég fékk nafnið mitt skrifað á japönsku og fékk að prufa sjálf að skrifa það. Það gekk bara nokkuð vel.
Svo smakkaði ég eitthavð mjólkur kíwí hlaup dót sem var nokkuð gott, svo sat ég og gerði origami og skoðaði japanska menningu.
Svo horfði ég á japanskar bardagalistir karate, ju jitsu, aikido og judo.
Svo á morgun er ég að fara að byrja á japönskunámskeiðum, ég get ekki beðið, að læra jaðpönsku er eitthvað sem mig hefur lengi langað.
Svo fórum ég og Deisy í bío á föstudaginn á Death at a funeral, hún var geggjað fyndin og ég var í hláturskasti eiginlega allan tíman;)
Og í bío hitti ég Svövu jey, hún var í bænum að versla búninga fyrir leikrit fyrir vestan.
...já þá er það komið...
kv. Carrot
Monday, January 21, 2008
Urrrrg!!!
Í dag keypti ég mér Sims 2 af því ég er alltaf að sjá Deisy í honum og mig langaði líka í hann svo ég fór og keypti mér hann ( Dagmar á mac sco ég get víst ekki fengið hennar leik) svo installaði ég leiknum og spilaði hann í svona einn og hálfan tíma, ég gerði fjölskydu, byggði svaka stórt flott hús og allt svo ætlaði ég að fara í leikinn aftur enn þá gat ég það allt í einu ekki, þá vantaði mig eitthvað forrit til þess að spila leikinn, sem er skrítið þar sem ég var búin að spila leikinn áður.
Svo tók það svo langan tíma svo ég ákvað að uninstalla leiknum, og installa honum aftur en það gekk ekki heldur nú er ég búin að sita hér í 30-40 mín og forritið sem ég er að downloda er komið í 28% sem þýðir að ég á eftir að sita hér ansi lengi og bíða eftir þessu áður en ég get spilað leikinn minn.
Mér finnst að öll forrit og allt sem ég gæti þurft að nota til að spia leikinn ættu að fylgja með h******* leiknum!
Allavega annars er ekki búið að gerast mikið hjá mér í dag ég er búin að nota tækifærið og slaka aðeins á nú þegar ég er loksins í fríi en á morgin verður tekið duglega til og þveginn þvottur, ég er að verða uppiskroppa með sokka= /
kv. Carrot
Sunday, January 20, 2008
Frí
Og enn betri fréttir ég þarf bara að vinna 2 daga í næstu viku sem þýðir að nú mun ég kannski koma því í verk að þvo fötin mín og taka aðeins til =(
Vá það er mikið að gera á næstunni.
kv. Carrot
Vinna...
En já, ég er sem sagt búin að vera að vinna á fullu undanfarið...ég ætlaði reyndar að fara í bíó á föstudaginn með Þórdísi og Dagmar, en það var uppselt =/ sem sökkar.
Ég veit reyndar ekki hvað ég á annað að segja þannig að ég læt þetta bara duga og blogga kannski seinna í vikunni =Þ aldrei að vita
kv. Carrot
Thursday, January 17, 2008
YAY!!!
Og ég lofa að vera dugleg að blogg!!!
Dagmar og Anna María eru vitni að þessum stórkostlega viðburði...
kv. Carrot