Nú er ég búin að mæta í tvo japönsku tíma, jey, sem þýðir að nú er ég með ákveðin japönsk orð og setningar á heilanum eins og o onegai shimasu og doo itashimashite.
Já við skulum ekkert vera að fara nánar út í það.
Annars er maður bara að læra og vinna nema í dag og á morgun þá er frí í vinnunni og svo löng vinnuhelgi framundan pffffff. Verð þreytt bara við að skrifa um það.
Svo var erfiður vinnudagur í gær, byrjaði vel en svolítið mikið að gera, en um tvö leitið komu 8 stykki gelgjur hlæjandi og skríkjandi og settust við borðin fyrir framan afgreiðsluna hjá okkur, og þarna sátu þær í næstum tvo og hálfan tíma, sem þýddi eitt stykki vondur höfuðverkur.
Svo loksins þegar höfuðverkurin fór lagði bíll frá flugbjörgunarsveitinni fyrir utan hjá okkur og það voru blikkljós á allan tíma (svonaljós eins og á gröfum) og þá kom höfuðverkurinn aftur á harðarspretti. Ég var mjög glöð að losna fyrr úr vinnunni:/
Þannig er nú það kv. Carrot
P.s. ég og Erla sitjum og hörfum á Opruh á stöð 2 og það er verið að tala um Secret bókina og myndina...úffff.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Það er kominn nýr mánuður, þannig að ég heimta nýtt blogg.
Í febrúar, er ég búin að blogga 4 sinnum. Og það eru bara 6 dagar búnir af mánuðnum.
Þú skalt taka mig til fyrirmyndar og blogga meira =)
t.d. um spennandi fréttir...um vinnu...wink wink, nudge nudge, say no more...
Post a Comment