Monday, March 24, 2008

Long time no see

Nú er langur tími liðinn frá seinasta bloggi:/

Margt er nú búið að ske á síðastliðnum mánuði það merkilegasta er:

Ég er nú loksins hætt í fullri vinnu á Serranó en álagið þar var að drepa mig ÁN DJÓKS.

Og til að halda upp á það sá Dagmar og allir fyrir frábæru suprise partýi fyrir mig með sushi og öllu, geggt gaman og ég var ekkert smá ánægð.

Svo fór ég austur í páskafríinu því Ásbjörn littli bróðir minn var að fermast, þetta lið stækkar óðum enda eru strákarnir orðnir stærri en ég :o/

Svo átti ég 20 ára afmæli 18. mars, stelpan orðin stór ha, og ég eyddi dágóðum tíma með Pálma littla bróður sem er algjör dúlla.

Svo fékk ég margar góðar gjafir skartgripi, skartgripaskrín, pening, Death Note þætti í seríuna mína og lítinn L, þeir sem hafa séð þetta vita hvað ég er að tala um, svo fékk ég gulrót en við förum ekkert nánar út í það:oþ ég á samt en eftir að fá smá pakka frá noregi og auk þess fékk ég flugmiða út í heimsókn til mömmu og Svavars.

Svo lofa ég að vera duglegri að blogga en ég komst ekki inn á bloggið fyrr en nú með góðri hjálp frá Dagmar;o)

Kv. Carrot

P.s. hér eru nokkrar myndir frá Eskifirði

Pálmi krútt montinn í smóking.

Ég og Matthías í fermingarveislunni.


Og Ásbjörn fermingarbarnið sjálft (fyrir utan að hann er víst ekki barn lengur;oþ )

2 comments:

Anonymous said...

Yay!!! loksins komið blogg frá þér =) það var nú mikið...

Þú hefðir átt að vera LÖNGU búin að biðja mig um hjálp sko. Þá hefðiru getað bloggað alveg heilan helling núna...og við hefðum getað lesið um merkilega líf þitt =Þ

Luv you =*
Dagmar

Erlakisa said...

Aww, sæt lítil börn XD
Það er gott að þú fílaðir afmælisgjafirnar :D Og á síðan ekki að halda afmælispartý? ;)

Kv. Erla