Wednesday, April 9, 2008

Sviti og púl

Eg hef ekki verið mjög dugleg að blogga en ég hef heldur ekki frá mjög miklu að segja...

Og þó jú ég get nú aðeins röflað yfir vinnunni mér finnst að ég ætti t.d. að fá að vera á vakstjóralaunum á þessum laugar- og sunnudögum sem ég tek aðra hverja helgi því ég var undir ágætisálagi seinustu helgi þar sem þar var enginn vaktstjóri yfir vaktinni svo eg og Allan sem er í eldhúsinu þurftum soldið að taka málin í okkar hendur og svo var ógeðslega mikið að gera, ekki mikið fólk en það kom ný manneskja um leið og maður var buin að afgreiða eina, og á sunnudeginum var ég og Maríanna einar í afgreiðslunni frá 11-1 og það var ógeðsleg hádegistörn þannig að við komumst ekki frá til að fá okkur að drekka eða neitt í næstum einn og hálfan klukkutíma og svo var margt annað sem þurfti að gera, þannig að eftir þessar vaktir kom ég sveitt og ógeðsleg heim;(

Svo byrjaði ég í boot camp í seinustu viku sem er ógeðslega erfitt en það er þess virði því manni líður geggjað vel eftir æfingarnar;)

Annars er ég bara heima að láta mér leiðast;/

Kv. Carrot

1 comment:

Dagmar Ýr said...

Aww...=( en þú getur alltaf látið þér leiðast með mér...nema þegar ég er í vinnunni...en þá geturu bara alveg komið í heimsókn til mín =Þ

=D

Það er ógeðslega gaman hjá okkur i Singstar núna =) þú ert að bíða eftir að playstationið restartar sér svo þú getir sungið Rolling Stones með Alex...svo eru plön fyrir Queen þegar það er búið =)

En af því að ég er næstumþví búin að kommenta meira heldur en þú ert búin að blogga, þannig að ég ætla að hætta þessu núna áður en eg fer að röfla eitthvað kjánalegt =Þ

Luv you =*
Deisý beibí